Húsið er nýtt og var byggt árið 2024 og er 108,6 fm heilsárshús rétt fyrir ofan Akureyri. Staðsetning Hálanda er við Hlíðarfjallsveg, u.þ.b. miðja vegu á milli skíðaaðstöðu Akureyringa í Hlíðarfjalli og bæjarins. Heitur pottur er í húsinu. 6 fermetra upphituð útigeymsla er áföst húsinu og hugsuð fyrir búnað skíða- og útivistarfólks.
Sængur og koddar eru í húsinu en leigjendur þurfa að hafa með sér rúmföt, lök, handklæði, og salernispappír. Nespresso kaffivél er í húsinu. Útihúsgögn og gasgrill eru á staðnum. Heitur pottur er við húsið. Nettenging er í húsinu. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er við húsið. Svefnpláss er fyrir 6 fullorðna í þremur herbergjum ásamt barnarúmi.
Allt dýrahald er með öllu óheimilt í þessum bústað.
Takk fyrir að skrá þig á póstlista !
Úps! Upp hefur komið villa, vinsamlegast reynið aftur.
mán - fim frá kl: 9-15
fös frá kl: 9-13