Einisfold 1, Skorradalur

UM ORLOFSHÚSIÐ

Húsið er byggt 2003 og er um 80 fermetrar að stærð. Heitur pottur er við húsið. Bátur fylgir í sumarleigu og leyfi til að veiða í Skorradalsvatninu.


Í húsinu er borðbúnaður fyrir tíu manns. Svefnpláss er fyrir 8 manns í rúmum, í þremur herbergjum, ásamt ferðabarnarúmi. Sængur og koddar fylgja hverju rúmi, en leigjendur þurfa að hafa með sér rúmföt , lök, handklæði og salernispappír. Nespresso kaffivél er í húsinu. Sólhúsgögn og gasgrill eru á staðnum.


Allt dýrahald er með öllu óheimilt í þessum bústað.

Share by: